þriðjudagur, nóvember 30, 2004

Skattur - Hattur
Ég er ekki vön að vera pólitísk hér í dagbókinni minni.
Nú er ég bara að tala fyrir mig, er ekki að gagnrýna skoðanir annarra samborgara minna, einungis að tala út frá MÉR:
Ég er ekki svo skyni skroppin að ég sjái ekki að almennar skattalækkanir munu gera góða hluti fyrir budduna mína, og ég er nú bara fátækur námsmaður, fædd inn í venjulega millistétt með venjulega heimavinnandi móður og föður sem stimplar sig inn og út úr vinnunni.
Ég er ekki svo skyni skroppin að halda að það myndi líðast á hinu lýðræðislega kjörna háa alþingi að svona breytingar myndu ná í gegn einungis til að smyrja rassinn á yfirstéttarfólkinu.
Ég er ekki svo skyni skroppin að trúa því að fólkið sem setið hefur sveitt við að reikna þetta allt saman út, útskrifað úr Háskólanum sem ég stunda sjálf nám í, hafi ekkert vit á því sem það er að gera.
Og hana nú. Aftur að námsbókunum.
Kveðja Aldís.




mánudagur, nóvember 29, 2004

Merkilegt
Mér finnst þetta merkilegt ég veit ekki með ykkur en hér með vek ég athygli á þessu.
Á einum stað í heiminum er þetta að gerast .... og miklar björgunaraðgerðir eru settar í gang við að koma dýrunum aftur út í sjó.
Síðan á öðrum stað í heiminum á þetta sér stað ....
þar sem menn eyða fullt af peningum í að ná í dýrin upp úr sjónum.





Bridget Jones
Þessi mynd klikkar ekki. Við Krúsystur vorum að koma úr vel heppnaðri bíóferð þar sem við hlógum í takt yfir þessari frábæru skemmtun, ræddum jólaljós, stráka, söngvenjur inná baðherbergjum og margt margt fleira. Takk fyrir kvöldið stelpur, nú líður mér miklu betur við að fara yfir ABC-greininguna í Reikningshaldi jess! :o)

Kveðja Aldís




sunnudagur, nóvember 28, 2004

Jólalag vikunnar
Þá er komið að því að tilkynna jólalag komandi viku sem mun einkennast af enn meiri lærdómi og langdvölum í Odda. Lagið er fyrsta jólalagið sem ég byrjaði að raula núna í nóvember og er því vel við hæfi að það fái að hefja tóninn hér í þessu vikulega vali.
Ég tók fram jólaseríurnar í gærkvöldi, þær fara upp í dag. Það þurfti tvær símhringingar af Just like a Pill með Pink og fimm dyrabjöllulög til að vekja mig svo ég gæti opnað fyrir gaurnum mínum í gær -sorrý beib súperkonur eru stundum þreyttar.
Do They Know it´s Christmas? -Band Aid

Áhugaverð grein um innrás íslenskra viðskiptajöfra inn í Bretland
-Grein úr Sunday Times





föstudagur, nóvember 26, 2004

Nauts!
ekki neima ein stafsetningarvilla, nokkuð gott fyrir manneskju hálfmeðvitundarlausa að blogga.
Hvað segiði um að ég verði með jólalag vikunnar hérna inná blogginu á komandi vikum? Gæti orðið spennó, gæti líka verið leiðó, veit ekki ...
jæja, smá ShowerPower, Kaffi, kannski föt og svo Oddi -sæjonara ...

Kveðja Aldís, fegurri en nokkru sinni fyrr




Þægindi
Á maður ekki pínulítið skilið að geta legið stundum uppi í rúmi með tærnar upp í loft? Mér finnst það, sérstaklega ef maður er búinn að vera að breyta í herberginu sínu og á möguleika á því að taka lyklaborð ásamt mús upp í rúm með sér.....og skrifað það sem manni dettur í hug þegar maður liggur flatur á bakinu. Ljúft. Svo auðvitað líka ef maður hefur átt soldið hræðilegan dag sem fór betur en á horfðist í fyrstu ....Þökk sé frábærum vinum sem skilja að maður verður stundum gaga in the head ef maður á erfitt .... Jæja, ótrúlegt hvað Jay Leno er alltaf í góðu skapi.... en ég er að missa vald á augnalokunum, er að berjast við að skrifa þetta án stafsetningarvillna en ætli það slæðist ekki svona 1-2 inn í þetta skiptir ... talk later... kv skvisan.




þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Maður mánaðarins
Án kosningar í þetta skiptið ætla ég að tilnefna og útnefna mann mánaðarins að þessu sinni en það er strákurinn sem kom hingað í gærkvöldi og færði líf mitt til betri vegar í alla staði. Já dömur mínar og herrar, hann losaði tölvuna mína við alls kyns óféti sem hafa dregið okkur báðar niður (mig og tölvuna) en nú eru málin leyst og þar að auki færði hann mig undir læknishendur í einnig í gær þegar ég var orðin afmynduð í framan af bólgumyndun v/ofnæmis. Einnig var ég öll útklóruð og bólótt v/kláða af sömu orsökum. Það var engu líkara en holdsveik kona hefði gengið inn um dyrnar á læknavaktinni í Smáranum en starfsfólkið lét á engu bera þó fylgdarfólk mitt ætti bágt með sig vegna HLÁTURS !! Að endingu vaknaði stelpan eins og ný í morgun, orðin eðlileg í framan og aftur komin með tölvumús sem virkar!

E
n til að gera langa sögu af mínum hrakförum stutta, skal ég tilkynna hver maðurinn er en það er enginn annar en GUNNAR STEINN tölvunarfræðingur Danmerkurbúi, Eyjamaður, piparsveinn stelpur!, Robbie Wiliams aðdáandi og listinn er langur. Hér er linkur á bloggsíðuna hans og þar blasir einnig við mynd af þessum sanna herramanni.


Innilega til hamingju með þennan verðskuldaða titil !






mánudagur, nóvember 22, 2004

Ég fór til tannlæknis í dag í mína árlegu skemmtiskoðun. Þetta er yfirleitt bara létt spjall milli tveggja kvenna inn á milli belgjandi soghljóða, frussandi rafmagnstannburstunar og skærra loftljósa. En þó þessi tannlæknaheimsókn mín sé hvorki í frásögur færandi né saga til næsta bæjar vil ég deila með ykkur dálitlu sem þessi ágæti tannlæknir sagði. "Hvernig heldurðu að bíllinn þinn myndi líta út ef þú þvoðir hann aldrei á hliðunum?" Þetta var líkingamál um tennurnar í þeim tilgangi að fá mig til að vera duglegri að nota tannþráð til að hreinsa hliðarnar á tönnunum. Þó ég eigi ekki bíl og fyndi þar af leiðandi ekkert sérstaklega til með strætó þá meikaði þetta heilmikinn sens. Héðan í frá ætla ég að byrja að nota tannþráð á eftir hverju einasta Colgate skrúbbi og enda svo með góðu munnskoli. Ég læt ykkur kannski vita hvernig gengur.
[Ég hellti kaffi yfir hluta af lyklaborðinu við að semja þessa færslu]




sunnudagur, nóvember 21, 2004

Í kjölfar þrifa í dag urðu eftirfarandi breytingar á herberginu mínu:

Setustofan ------> http://www.hi.is/~aldis/Haust2004/DisuLand/DSCN1064.JPG
Beddinn ---------> http://www.hi.is/~aldis/Haust2004/DisuLand/DSCN1065.JPG
Gluggaútsýni ----> http://www.hi.is/~aldis/Haust2004/DisuLand/DSCN1069.JPG






laugardagur, nóvember 20, 2004

Karlmaður dagsins
Strákar, þið eruð ekki einu sinni að reyna. Það væri gott á ykkur ef ég kysi bara konu sem karlmann dagsins. Já best ég geri það bara:

Ég er karlmaður dagsins í dag!
Ég er alveg frábær, stend mig vel í öllu sem ég tek mér fyrir hendur, kann á traktor, lyftara og körfubíl, og kann að baka pönnukökur, fer á Þjóðhátíð á hverju ári, fer í vísindaferðir og nenni að glósa í tímum og smjaðra passlega við kennarana, get ryksugað allan stigaganginn í húsinu á góðum degi, kann að taka á móti lambi sem er að fæðast, hef stungið skít út úr fjárhúsi með gaffli og já, er bara nokkuð dugleg að blogga.

Ég er bara nokkuð ánægð með titilinn, takk fyrir mig!




fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Þarfaverk dagsins
1) Tók til í fataskápnum og henti því sem hefur ekki verið notað sl. 3 mán.
2) Glósaði vel í öllum tímum (nema síð. 30 mín. í mark. ég gafst upp!)
3) Vökvaði blómin mín -öll fjögur stykkin

Tilnefningar að næsta karlmanni dagsins verða tilkynntar bráðlega ... nú er um að gera fyrir ykkur karlmenn sem þekkið mig að reyna að veiða points !






miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Góðverk dagsins
1) Aðstoðaði gamla konu í hálkunni í dag til að komast upp í strætó.
2) Skúraði eldhúsið eftir föstudagskvöldið
3) Þreif wc herbergið




Af fréttaþulum ...
Getur einhver sagt mér af hverju ólæs fréttaþulur fær að lesa morgunfréttirnar á Stöð 2 og Bylgjunni ????
Þetta hikst í þulnum skánar ekkert þrátt fyrir mikla æfingu frá september !
Kveðja, Aldís sem er LÆS.




þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Snjór
Það er allt að fenna í kaf hérna í Reykjavík í augnablikinu !




Íslendingum fjölgar..
EF þið viljið sjá fleiri myndir af þessu nýfædda krútti sem býr í Danmörku en á íslenska mömmu og pabba smellið þá á Stjörnurnar og veljið Fannýarkríli

Fanný og Kiddi til hamingju með soninn !




mánudagur, nóvember 15, 2004

Færsla
Ég bara varð að koma með aðra færslu. ´
3 verkefni kláruð í sömu vikunni + að prófaupplestur byrjar af krafti á morgun. Ekki laust við að maður sé strax orðin skelfingu lostinn bara við tilhugsunina um próf.Á svona tímamótum fer ég alltaf eitthvað burt í huganum, heim í Dalinn góða þar sem ég stend fyrir framan hvíta tjaldið og tek góðan sopa af Diet Coke-inu við undirspil frá Stóra-sviðinu sem bergmálar í klettunum. Brennan í gær var frábær eins og alltaf, bíð spennt eftir flugeldasýningunni í kvöld. Ekkert nema stuð framundan. Þá er hjartslátturinn aftur orðinn eðlilegur og ég veit að lífið heldur áfram eftir prófin...




Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn dagsins:Þú hefur mikla trú á sjálfum þér og hæfileikum þínum. Hugrekki og sjálfsagi eru eiginleikar þínir og þú hleypst ekki undan merkjum. Þú gætir þess að undirbúa þig og ert því ævinlega til reiðu þegar á hólminn er komið. Þolinmæði, árvekni og ástríður eru ríkar í þínu fari.

Til hamingju með daginn Villi !




sunnudagur, nóvember 14, 2004

KB-banki
KB-banki tók vel á móti útúrlærðum, þreyttum og svöngum viðskiptafræðinemum í nýju húsnæði sínu í gær. Kokkurinn í eldhúsinu hlóð fyrir mig gemsann á meðan við stoppuðum en ég var svo skír í kollinum að muna eftir hleðslutækinu áður en ég fór að heiman. Ferðinni lauk um sjö leytið en þá fengu vinir og vandamenn aðhlynningu á 69-unni þar til ætlast var til mætingar á Hverfisbarinn. Óskar flugþjónn sá um bjórinn, Sía Pía sá um grínmyndirnar, Anna Gyða greiddi öllum með eldhúsáhöldum, Gunni Villavinur sá um Bjarkartónlistina og Vilberg Kylfa einnig Villavinur sá um að halda andlitinu fyrir strákastóðið sem hagaði sér misvel á köflum. Með stuttri viðkomu á 96-unni var haldið á Hverfsibarinn þar sem allir fengu útrás í sexyness á dansgólfinu. Það var óneitanlega þreytt en kát stúlka sem lagðist til svefns í nótt ....
Takk fyrir samveruna í gær krúttin mín !
Myndir eru komnar inn á nýju myndasíðuna !




fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Plan fram í tímann
"Það er laus tími klukkan 10 að morgni Þorláksmessu, viljiði fá hann?" -"Já takk við tökum hann, nöfnin eru Aldís og Eygló!"

Og þar með er búið að panta jólaklippinguna útí Eyjum fyrir þessi jólin ...

Kveðja Aldís Með Síða Hárið




Lífið mitt í dag
Tölfræðiskýrslu dauðans var skilað í gærkvöldi í Odda með hjálp skúringakonunnar sem ljáði okkur hefti af skrifstofunni fyrir blaðsíðutal 20+ hjartahlý kona þar á ferð. Núna rétt í þessu náði ég 05.00 fréttunum á RÚV í þriðja sinn í þessari viku, ég heyrði þar að Arafat kallinn er víst látinn en hann byrjaði að smygla vopnum fyrir palestínska skæruliða aðeins 16 ára að aldri. Hann hefur verið með viðskiptavit í kollinum, og líklega einnig slatta af grimmd. Hann háði sex daga stríðið. Þó var hann sæmdur friðarverðlaunum Nóbels eitthvert árið. Merkilegur heimur þetta. 333.000 ný störf urðu til í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Það er hærri tala en íbúafjöldi Íslands. Meiri hagvöxtur þar í landi og seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði vexti. Veður kólnar. Fleira er ekki í fréttum. Eins og ekta bisnessdrottning kom ég við á kvöldbarnum í gær á leið heim úr skólanum til að slaka á taugunum eftir erfiða viku ... það tókst með eindæmum vel enda í góðum félagsskap indællar manneskju af hinu kyninu ... næst á dagskrá eru þó tvö verkefni sem skila þarf í næstu viku.
Kveðja, Aldís Alltaf Vakandi





þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Í dag nenni ég ekki að skrifa léttan og skemmtilegan pistil af því allt er svo gaman. Af því það er það ekki. Ég er þreytt, leið og ég sakna fjölskyldunnar minnar. Svo bara skil ég ekki hvernig ég get stundum vaknað sæt og krúttleg í framan og stundum bara alls ekki. Upp á síðkastið hefur það frekar færst í vöxt að ég vakna ekki sæt í framan. Það er samt ekkert langt síðan ég áttaði mig á því að það vakna ekki allir eins og Jennifer Aniston eða Cindy Crawford í framan. Og enn styttra síðan ég áttaði mig á að þær vakna ekki einu sinni sjálfar þannig. Merkilegt. Ef þær bara vissu ... Úff ég verð að fara að sofa á nóttunni ...




sunnudagur, nóvember 07, 2004

Skírn
Jón og Margrét létu skíra litlu snúlluna heima í gær og nú ber hún nafnið Sunna. Athöfnin í stofunni var mjög falleg og meir að segja karlmennirnir tóku undir í sálmasöngnum. Á eftir var vel veitt af veitingum eins og ævinlega þegar Margrét tekur sig til í eldhúsinu og þegar líða tók á daginn kom í ljós að sykurinn hafði ekki verið sparaður í kökurnar því börnin urðu hyper og létu ljós sitt skína á öllu dóti sem gaf frá sér hljóð um og yfir hættumörkum. Einhvernveginn fór þetta þó allt vel að lokum og allir yfirgáfu Sólarsalina í góðu skapi eftir vel heppnaðan dag. Myndir frá deginum eru komnar inn á myndasíðuna.
Til hamingju með allt saman Jón og Margrét!

Kveðja, Aldís Yfirljósmyndari
p.s. fleiri myndir frá gærdeginum eru inn á barnalandssíðunni -sjá linkinn "Stjörnurnar" hér til hliðar ...




föstudagur, nóvember 05, 2004

Karlmaður dagsins
Eftir harða baráttu hefur karlmaður dagsins í dag borið sigur úr bítum.
Það er enginn annar en Eddi Everton sem sigraði markaðsfræðikennarann minn naumlega en Eddi er vel að titlinum kominn, hress og fínn strákur og stelpur -hann er á lausu! Hérna sjáið þið mynd af kappanum í góðu glensi (þessi í bláu peysunni)

Við óskum honum hjartanlega til hamingju!




fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Tilnefningar
Eftir nokkrar klukkustundir mun ég tilkynna hver verður næsti karlmaður dagsins.
Tilnefndir eru:
Strætóbílstjórinn sem keyrir fimmuna á morgnana í Háskólann
-fyrir að vera byrjaður að segja "hæ" við mig og Eygló.
Markaðsfræðikennarinn minn
-fyrir að taka því trúanlega þegar ég rétti ein upp höndina í tíma þegar hann spurði hverjir borðuðu aldrei skyndibita
Eddi Everton sem er með mér í viðskiptafræðinni
-fyrir að hafa nennt að byrja að tala við okkur skvísurnar á nýnemaballinu fyrir ári og þar með verða fyrsti strákurinn sem við stelpurnar kynntumst í skólanum ... vúhú! reyndar ásamt Atla sem flúði í Kennó þegar hann misskildi einhvern varðandi að þar væru skemmtilegri vísindaferðir

Allavega, tilkynnt verður hver hreppir titilinn innan tíðar ...
Kveðja Aldís SemÞurrkarAfDrasliÁðurEnÞaðFerÍruslið....döööö




miðvikudagur, nóvember 03, 2004

Kosningavaka
Ég fékk skyndilega þörf fyrir að skrúbba síðuna aðeins til yfir bandarísku forsetakosningunum og þetta er afraksturinn. Látið mig nú vita ef þetta er bara asnalegur litur og þið fáið ofbirtu í augun af þessum fallega lit.
Ég fann skemmtilegar upplýsingar um Bush og Kerry, þið getið kíkt á þær hér og hér.
Enn sem komið er þegar klukkan er 03:40 er ekki hægt að segja með tölfræðilegri marktækni hvor mun sigra. Ætli mar heyri ekki af því í öllum fréttatímum á morgun hvort eð er, ofboðslega kallar rúmið á mig *geisp* Af því þið eruð svo sæt að nenna að lesa síðuna mína er hérna eitthvað fallegt til að gleðja ykkur í skammdeginu.
Kveðja Al-Dís Tal-Dís.




mánudagur, nóvember 01, 2004

Babysitting
Ég kvarta ekki yfir að hafa ofan af fyrir þessum tveimur í augnablikinu .... þetta eru Guðjóns- og Rósudætur og eru mestu englar í heimi.




This page is powered by Blogger. Isn't yours?